Einbýlishús - nýbygging og niðurrif
Þrastargata 7 01.55.311.0
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 11 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 731
21. maí, 2013
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að rífa hús og byggja nýtt einbýlishús, eina hæð og ris, burðarvirki úr timbri og klætt aluzinki á steyptum sökkli á lóð nr. 7 við Þrastargötu.
Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 14. mars 2013 og Minjasafns Reykjavíkur dags. 4. apríl 2013 og 17. maí 2013.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 3. maí 2013 fylgir erindinu.
Niðurrif: 51,5 ferm.
Nýbygging: 1. hæð 62 ferm., 2. hæð 51,8 ferm.
Samtals 113,8 ferm., 314,8 rúmm.
Gjald kr. 9.000
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

107 Reykjavík
Landnúmer: 106536 → skrá.is
Hnitnúmer: 10016228