Breyting - 1.og 2.hæð
Dvergshöfði 27 04.06.140.3
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 10 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 733
4. júní, 2013
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að innrétta á fyrstu hæð austurálmu verslun og vélaverkstæði, í vesturálmu trésmíðaverkstæði, á annarri hæð að endurinnrétta austurálmu sem skrifstofurými, matstað og geymslu/lager. Jafnframt er sótt um leyfi til að stækka anddyri/afgreiðslu á fyrstu hæð vesturálmu í húsinu á lóð nr. 27 við Dvergshöfða.
Samþykki meðeigenda dags. 23. maí 2013, bréf frá hönnuði dags. 28. maí 2013 og umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 23. apríl 2013 fylgja erindi.
Stækkun: 3,6 ferm., 14,4 rúmm.
Gjald kr. 9.000
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

110 Reykjavík
Landnúmer: 110622 → skrá.is
Hnitnúmer: 10000635