Fjölga íbúðum og breyta útliti
Óðinsgata 9 01.18.421.6
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 10 árum síðan.
Málsaðilar
Jenný Davíðsdóttir
Byggingarfulltrúi nr. 738
9. júlí, 2013
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til þess að fjölga íbúðum úr tveimur í fjórar og breyta útliti götu- og bakhliðar fjölbýlishúss á lóð nr. 9 við Óðinsgötu.
Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 20. mars 2013 fylgir erindinu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 28. júní 2013 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 20. mars 2013. Erindið var grenndarkynnt frá 24. maí til og með 24. júní 2013. Engar athugasemdir bárust.
Gjald kr. 9.000 + 9.000
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.