Stækka þakglugga, þaksvalir og áður gert
Ægisíða 74 01.54.500.4
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 11 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 723
19. mars, 2013
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að stækka núverandi þakglugga, byggja inndregnar þaksvalir og um samþykki á þegar framkvæmdum breytingum og endurnýjun sem felast í að í kjallara hefur verið bætt við stiga upp á 1. hæð, baðherbergi fært, útidyr á norðvesturhlið færðar á norðausturhlið, nýjum útgangi bætt við á suðausturhlið, á 1. og 2. hæð hafa tvö herbergi verið sameinuð í eitt og innangengt gert á baðherbergi í ibúðarhúsinu á lóð nr. 74 við Ægisíðu.
Meðfylgjandi er samþykki eiganda neðri hæða dags. 18.2. 2013, bréf arkitekts dags. 18.2. 2013.
Gjald kr. 9.000 + 9.000
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

107 Reykjavík
Landnúmer: 106460 → skrá.is
Hnitnúmer: 10016984