Breyting - 4. og 5. hæð
Tryggvagata 16 01.13.210.4
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 10 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 737
2. júlí, 2013
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að breyta þaki, setja kvisti með skúrþaki á báðar hliðar, inndregnar svalir á suðurhlið og innrétta íbúðir á 4. og 5. hæð íbúðar- og atvinnuhúss á lóð nr. 16 við Tryggvagötu.
Erindi fylgir þinglýst eignaskiptayfirlýsing dags. 15. september 2005 og samkomulag eigenda Tryggvagötu 16 (ekki þinglýst), dags. 7. desember 2004 og fsp. dags. 20. nóvember 2012 ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 8. mars 2013 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 6. mars 2013.
Umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 23. maí og bréf hönnuðar dags. 24. maí 2013 fylgja erindinu.
Ný skráningartafla fylgir erindinu.
Minnkar un 14,7 ferm.
Stækkar um 161,1 rúmm.
Gjald kr. 9.000 + 9.000
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.