Pallur, útitröppur og útihurðir
Þingholtsstræti 21 01.18.010.2
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 10 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 748
24. september, 2013
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja pall við norðausturhlið, gera nýjar dyr úr hjólageymslu á götuhæð, skipta í tvær íbúðir og færa til upprunalegs horfs útlit einbýlishúss á lóð nr. 21 við Þingholtsstræti.
Erindi fylgir umsögn Minjasafns Reykjavíkur og Minjastofnunar Íslands dags. 15. febrúar 2013 ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 12. apríl 2013 og umsögn skipulagsfulltrúa dags, 1. mars 2013. Erindið var grenndarkynnt frá 7. mars til og með 8. apríl 2013. Engar athugasemdir bárust.
Gjald kr. 9.000
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101678 → skrá.is
Hnitnúmer: 10016134