Kvistur - vesturþak
Suðurgata 7 01.14.131.2
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 11 árum síðan.
Málsaðilar
Auður Harðardóttir
Byggingarfulltrúi nr. 726
16. apríl, 2013
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja kvist á vesturhlið fjölbýlishúss á lóð nr. 7 við Suðurgötu.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda ódagsett, útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 22. mars 2013 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 6. febrúar 2013. erindið var grenndarkynnt frá 18. febrúar til og með 18. mars 2013. Engar athugasemdir bárust.
Stækkun: 7 rúmm.
Gjald kr. 9.000 + 630
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við fokheldi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100915 → skrá.is
Hnitnúmer: 10021954