Svalir
Hrefnugata 4 01.24.730.2
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 11 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 713
8. janúar, 2013
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til þess að byggja svalir á suðurhlið fyrstu og annarrar hæðar og útbúa sérafnotaflöt fyrir kjallaraíbúð í húsinu á lóðinni nr. 4 við Hrefnugötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 8. júní 2012 fylgir erindinu (v. fyrirspurnar, sjá fyrirspurnarerindi BN044556) ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 6. júní 2012.
Samþykki meðeigenda dags. 18.09.2012 fylgir erindinu.
Umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 05.11.2012 fylgir erindinu ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 4. desember 2012. Erindið var grenndarkynnt frá 22. nóvember 2012 til og með 20. desember 2012. Engar athugasemdir bárust.
Gjald kr. 8.500
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

105 Reykjavík
Landnúmer: 103363 → skrá.is
Hnitnúmer: 10020611