Farfuglaheimili
Bankastræti 7 01.17.000.7
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 11 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 698
4. september, 2012
Frestað
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja svalir, brunastiga og geymslur við 4. hæð og innrétta farfuglaheimili á 2. - 4. hæð verslunar- og skrifstofuhúss á lóð nr. 7 við Bankastræti.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 24. ágúst 2012 fylgir erindinu. Grenndarkynning stóð frá 23. júlí til 21. ágúst 2012. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Stefán Baldursson f.h. Húsakaupasjóðs Íslensku Óperunnar dags. 14. ágúst 2012. Einnig er lagt fram samþykki Eikar fasteignafélags hf. , eigenda að Bankastræti 5, og Hús málarans ehf., eiganda að Bankastræti 7A, móttekið 21. ágúst 2012. Einnig er lagt fram tölvubréf Stefáns Baldurssonar fh. íslensku Óperunnar dags. 24. ágúst 2012 þar sem hann dregur fyrri athugasemd til baka.
Erindi fylgir brunahönnun frá verkfræðistofunni Eflu dags. 22. ágúst 2012.
Stækkun 16,4 ferm., 46 rúmm.
Gjald kr. 8.500 + 3.910
Svar

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101325 → skrá.is
Hnitnúmer: 10007581