Viðbygging og nýbygging
Nauthólsvegur 87 01.75.520.3
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 11 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 693
24. júlí, 2012
Frestað
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja úr timbri á steyptum sökkli á einni hæð með millilofti yfir miðju rými viðbyggingu með kjarna og tveim kennslustofum við núverandi stakstæða kennslustofu mhl. 02 og til að byggja aðra byggingu eins með fjórum kennslustofum, kjarna og millilofti mhl. 03 við skóla Hjallastefnunnar á lóð nr. 87 við Nauthólsveg.
Meðfylgjandi er bréf skólafélags Bakhjalla dags. 2.7. 2012 þar sem farið er fram á undanþágu frá byggingarreglugerð 112/2012.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 13. júlí 2012 fylgir erindinu.
Stærðir: mhl. 02: stækkun: 391,4 ferm., 1.384,5 rúmm.
mhl. 03: 667,2 ferm., 2.368,9 rúmm.
Samtals: 1.058,6 ferm., 3.753,4 rúmm.
Lóð 7.204 ferm., nýtingarhlutfall 0,28
Gjald 8.500 + 8.500 + 319.048.
Svar

Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnareftirlits.