Veggsvalir á suðurhlið
Brekkustígur 15 01.13.441.0
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 11 árum síðan.
Málsaðilar
Jón Gunnar Valdimarsson
Byggingarfulltrúi nr. 695
14. ágúst, 2012
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja veggsvalir á suðurhlið og breyta gluggum á 2. hæð suður og 1. hæð austur í dyr á einbýlishúsi á lóð nr. 15 við Brekkustíg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 3. ágúst 2012 fylgir erindinu. Grenndarkynning stóð frá 28. júní til og með 26. júlí 2012. Engar athugasemdir bárust.
Gjald kr. 8.500
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100380 → skrá.is
Hnitnúmer: 10007892