Bókun BN044541 leiðrétt
Haukdælabraut 48-56 05.11.470.2
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 687
12. júní, 2012
Annað
Fyrirspurn
Á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa þann 5. júní 2012 var erindið BN044541- Haukdælabraut 48-56 ranglega bókað svo:
"Sótt er um leyfi til þess að byggja tveggja hæða steinsteypt raðhús með fimm íbúðum á lóðinni nr. 48-56 við Haukdælabraut."
Leiðrétt bókun hljómar svo:
"Sótt er um leyfi til þess að byggja tveggja hæða steinsteypt raðhús með fimm íbúðum og fimm innbyggðum bílgeymslum á lóðinni nr. 48-56 við Haukdælabraut."
113 Reykjavík
Landnúmer: 214804 → skrá.is
Hnitnúmer: 10101663