Svalir 3. hæð - breyting
Bergstaðastræti 48A 01.18.530.2
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 11 árum síðan.
Málsaðilar
Guðrún Edda Guðmundsdóttir
Byggingarfulltrúi nr. 691
10. júlí, 2012
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til þess að stækka svalir á þriðju hæð suðvesturhliðar hússins á lóðinni nr. 48A við Bergstaðastræti.
Ný skráningartafla fylgir erindinu.
Samþykki meðeigenda (á teikningu) fylgir erindinu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 6. júlí 2012 fylgir erindinu.
Erindið var grenndarkynnt frá 7. júní til og með 5. júlí 2012. Engar athugsemdir bárust.
Gjald kr. 8.500
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.

Landnúmer: 102170 → skrá.is
Hnitnúmer: 10007063