Svalir og hringstigi
Njörvasund 24 01.41.300.7
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 11 árum síðan.
Málsaðilar
Soffía Húnfjörð
Byggingarfulltrúi nr. 704
16. október, 2012
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja hringstiga á bakhlið, svalir á 1. hæð og rishæð, grafa frá kjallara, gera hurð út og koma fyrir setlaug á baklóð fjölbýlishúss á lóð nr. 24 við Njörvasund.
Umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 8. okt. 2012 og bréf frá hönnuði ódags. fylgir. Samþykki meðeigenda dags. 27. febrúar 2012 fylgir erindi ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 18. maí 2012 og útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 3. águst 2012. Grenndarkynning stóð frá 28. júní til og með 26. júlí 2012. Engar athugasemdir bárust.
Gjald kr. 8.500
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

104 Reykjavík
Landnúmer: 105071 → skrá.is
Hnitnúmer: 10023509