Svalir
Bergþórugata 8 01.19.201.2
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 12 árum síðan.
Málsaðilar
Guðlaugur Vignir Sigursveinsson
Byggingarfulltrúi nr. 676
13. mars, 2012
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja svalir úr stáli og timbri á 2. hæð suðurhliðar og gerð er grein fyrir áður gerðum breytingum sem felast í að síkka glugga og gera svalahurðir á 1. og 2. hæð fjölbýlishússins á lóð nr. 8 við Bergþórugötu.
Erindi fylgir jákvæð fyrirspurn dags. 16. ágúst 2011 og samþykki meðeigenda dags. 8. desember 2011 áritað á uppdrátt. Einnig ljósrit úr fundargerðarbók dags. 8.12. 2011
Gjald kr. 8.000
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102518 → skrá.is
Hnitnúmer: 10007111