rífa skúr - byggja í stað viðbyggingu
Laugarásvegur 25 01.38.040.9
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 12 árum síðan.
Málsaðilar
Hallgrímur G Sigurðsson
Byggingarfulltrúi nr. 675
6. mars, 2012
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að fjarlægja einlyfta skúrbyggingu við austurhlið og byggja þess í stað úr steinsteypu tvílyfta viðbyggingu á bakhluta lóðarinnar, sbr. fyrirspurn BN043304, sem tengist með tengigangi úr timbri núverandi húsi, byggt 1935, á lóð nr. 25 við Laugarásveg.
Erindið var grenndarkynnt fyrir hagsmunaaðilum að Laugarásvegi 19, 21, 23 og 27. Á fundi skipulagsstjóra þann 9. desember 2011 var samþykkt að framlengja athugasemdafrest til 3. janúar 2012. Að lokinni kynningu sendu eftirtaldir aðilar athugasemdir: Sigríður Guðmundsdóttir dags. 13. desember 2011, Ólöf Nordal og Tómas Sigurðsson dags. 3. janúar 2012.
Meðfylgjandi með fyrirspurn er greinargerð arkitekts dags. 7.7. 2011 og umsögn skipulagsstjóra dags. 29.7. 2011. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 17.01.2012.
Stærðir stækkun brúttó: 725,4 ferm., 725,4 rúmm.
Eftir stækkun samtals: 297,8 ferm., 1.033,4 rúmm.
Niðurrif: 19,2 ferm., 54,7 rúmm.
Gjald kr. 8.000 + 82.672
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

104 Reykjavík
Landnúmer: 104769 → skrá.is
Hnitnúmer: 10016691