viðbygging
Sogavegur 3 01.81.0-9.8
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 12 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 663
6. desember, 2011
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingar við austur- og vesturhlið með lagnakjallara undir vestari viðbyggingu við verslunarhús á lóð nr. 3 við Sogaveg.
Útskrift úr gerðabók skipulagsráðs dags. 30. nóvember 2011 fylgir erindi.
Erindi fylgir einnig jákvæð fyrirspurn dags. 24. maí 2011, neikvæð fyrirspurn dags. 29. mars 2011 og umsögn Skipulagsstjóra dags. 21. nóvember 2011. Erindið var grenndarkynnt frá 19. október til og með 16. nóvember 2011.
Athugasemdir bárust.
Stækkun: Verslun 1. hæð 63,8 ferm., lagnakjallari 56,8 ferm.
Samtals 120,6 ferm., 318,1 rúmm.
Gjald kr. 8.000 + 25.448
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

108 Reykjavík
Landnúmer: 107820 → skrá.is
Hnitnúmer: 10018591