endurnýjun á BN039178
Brattagata 3A 01.13.653.6
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 12 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 648
23. ágúst, 2011
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um endurnýjun á erindi BN025563, samþykkt 8. október 2002 og endurnýjað 18. nóv. 2008 þar sem veitt var leyfi til að breyta vinnuskúr í sérgeymslur, stækka kvisti á norðurþekju, byggja svalir og nýjan kvist á suðurþekju og innrétta nýja íbúð á þakhæð hússins á lóð nr. 3A við Bröttugötu.
Þessi skjöl fylgdu fyrra máli, brunatæknileg úttekt VSI dags. 28. júní 2002 . Umsögn Árbæjarsafns dags. 8. júlí 2002 og umsögn Húsafriðunarnefndar ríkisins dags. 8. júlí 2002 . Virðingargjörð dags. 1. nóvember 1941.
Skoðunarskýrsla byggingarfulltrúa dags. 20. ágúst 2002.
Stærð: Stækkun kvistir 3,6 ferm., 13,5 rúmm.
Gjöld kr. 8.000 + 1.080
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100625 → skrá.is
Hnitnúmer: 10007667