hurðir, gluggar og breyting inni
Seljavegur 2 01.13.010.5
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 12 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 650
6. september, 2011
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi á 1. hæð mhl. 03, setja iðnaðarhurðir og glugga á gafla mhl. 03 og 04 sem eru á lóðarmörkum við Vesturgötu 64 og tryggja aðkomu yfir þá lóð að húsi á lóð nr. 2 við Seljaveg.
Umsögn burðarvirkishönnuðar fylgir dags. 3. ágúst 2011.
Gjald kr. 8.000 + 8.000
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.
Þinglýsa skal kvöð um að hurðarnar verði fjarlægðar komi til þess að byggt verði á lóðinni upp að framangreindum göflum fyrir útgáfu byggingarleyfis.