kaffihús í flokki II
Nýlendugata 14 01.13.110.8
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 12 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 650
6. september, 2011
Frestað
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að opna kaffihús í flokki II, koma fyrir sorpi fyrir kaffihúsið á svölum 3. hæðar og breikka gangstétt sem svarar þrem bílastæðum í atvinnuhúsnæðinu á lóð nr. 14 við Nýlendugötu.
Fylgir samþykki nágranna á lóð nr. 16 fyrir sorpgeymslu á vesturgafl Nýlendugötu 14 á lóð Nýlendugötu 16. Umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 18. ágúst. 2011. Bréf frá hönnuði um breytingu á umsókn dags. 30. ágúst 2011 fylgir. Ennfremur er fallið frá erindi BN043453 á Nýlendugötu 16.
Jákvæð fyrirspurn BN043124 dags. 7. júní 2011 fylgir.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 22. júlí 2011 fylgir erindinu ásamt umsögn Orkuveitu Reykjavíkur um staðsetningu heitavatnsmæla dags 15. júlí 2011.
Gjald kr. 8.000 + 8.000
Svar

Frestað.
Vísað til umsagnar skrifstofu gatna- og eignaumsýslu vegna stækkunar á gangstétt.