breytingar á risíbúð
Ránargata 15 01.13.620.1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 12 árum síðan.
Málsaðilar
Dóróthea Lárusdóttir
Byggingarfulltrúi nr. 651
13. september, 2011
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja gluggakvist á norðvesturhlið, koma fyrir þakglugga á mæni, endurnýja eldri þakglugga og byggja svalir á suðurgafl fjölbýlishússins á lóð nr. 15 við Ránargötu.
Grenndarkynning stóð yfir frá 29. júní til og með 27. júlí 2011. Engar athugasemdir bárust.
Erindi fylgir þinglýst eignaskiptayfirlýsing dags. 23. apríl 2008.
Stækkun: ,8 rúmm.
Gjald kr. 8.000 + 64
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við fokheldi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100537 → skrá.is
Hnitnúmer: 10025116