breyting inni og úti
Aragata 15 01.63.050.2
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 13 árum síðan.
Málsaðilar
Ingigerður Á Guðmundsdóttir
Byggingarfulltrúi nr. 601
31. ágúst, 2010
Samþykkt
41664
41961 ›
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að breyta inni og úti, sem að hluta eru áður gerðar framkvæmdir, endurnýja húðun á útveggjum, fjarlægja steypta plötu yfir stofu og byggja sperruþak, stækka op milli stofu og gangs og byggja arinn, bæta við glugga á þvottahús 1. hæðar, flytja inntök heimlagna, koma fyrir glerskýli á svölum, breyta skyggni yfir aðalinngangi og setja garðhurð á suðurhlið einbýlishússins á lóð nr. 15 við Aragötu.
Bréf frá hönnuði dags. 5. júní 2010 og 18. júní fylgja ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 27. ágúst 2010. Kynning stóð yfir frá 21. júlí 2010 til og með 19. ágúst 2010. Engar athugasemdir bárust.
Stækkun: Svalaskýli á 1.hæð 2,18 ferm., 17.17 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 7.700 +1.322
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

102 Reykjavík
Landnúmer: 106675 → skrá.is
Hnitnúmer: 10006689