breyta inngangi í húsið, svalir ofl.
Grettisgata 53B 01.17.422.7
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 13 árum síðan.
Málsaðilar
Snæbjörn Þór Stefánsson
Byggingarfulltrúi nr. 591
15. júní, 2010
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að fjarlægja utanáliggjandi tröppur, grafa frá húsi, byggja svalir á 2. hæð, gera nýjan inngang á jarðhæð og sótt um leyfi fyrir áður gerðri íbúð á 0201 á 2. hæð með sýndum breytingum af fjölbýlishúsi á lóð nr. 53B við Grettisgötu.
Erindi fylgir samþykki meðlóðarhafa dags. 9. júní 2010 og umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 1. júní 2010 fylgir.
Niðurrif: 4,0 ferm., 10,6 rúmm.
Gjald kr. 7.700
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101630 → skrá.is
Hnitnúmer: 10011623