bílskúr
Stórholt 17 01.24.601.1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 13 árum síðan.
Málsaðilar
Ragnar Ingibergsson
Eiríkur Sigurðsson
Eggert Sigurðsson
Byggingarfulltrúi nr. 601
31. ágúst, 2010
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja staðsteypta tvöfalda bílageymslu á lóð nr. 17 við Stórholt.
Jákvæð fyrirspurn BN041000 dags. 16. feb. 2010 fylgir erindinu og samþykki meðeigenda.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 27. ágúst 2010 fylgir erindinu. Kynning stóð yfir frá 26. júlí 2010 til og með 24. ágúst 2010. Engar athugasemdir bárust.
Stærð: 57 ferm., 178,4 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 13.737
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

105 Reykjavík
Landnúmer: 103282 → skrá.is
Hnitnúmer: 10021145