stækkun kvists
Efstasund 84 01.41.001.0
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 14 árum síðan.
Málsaðilar
Ingileif Guðjónsdóttir
Byggingarfulltrúi nr. 572
26. janúar, 2010
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að rífa eldri kvist og byggja nýjan og stærri á vesturhlið einbýlishússins á lóð nr. 84 við Efstasund.
Jafnframt er gerð grein fyrir áður gerðri ósamþykkjanlegri íbúð í kjallara.
Erindi fylgir samþykki meðeiganda áritað á uppdrátt ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 13. nóv. 2009.
Einnig fylgja þinglýst afsöl dags. 29. júní 1972, 24. maí 2000 og 10. júlí 2003 ásamt skiptayfirlýsingu dags. 21. júní 1991 og íbúðarskoðun byggingarfulltrúa dags. 3. des. 2009.
Stækkun: 3 ferm., 6,2 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 477
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Afmörkun ósamþykkjanlegarar íbúðar er gerð með vísan til 15. gr. reglugerðar nr. 910/2000.

104 Reykjavík
Landnúmer: 104971 → skrá.is
Hnitnúmer: 10008595