Breytt erindi BN056559 - Ýmsar breytingar
Freyjubrunnur 23 26.95.412
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 1071
9. júní, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til þess að breyta erindi BN056559 sem felst meðal annars í því að sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er fjarlægð, sérgeymslur stækkaðar, geymsluskápar fjarlægðir úr bílageymslum, komið er fyrir nýjum gluggum á endabílgeymslur, útliti handriða breytt og skráningartafla, rýmisnúmer og nettóstærðir eru uppfærðar.
Gjald 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.