Skarðshlíð (áður Vellir 7. áfangi), deiliskipulagsvinna.
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 360
2. desember, 2014
Annað
Fyrirspurn
Tekið til umræðu framhald vinnu við endurskoðun deiliskipulagsins. Skipulags- og byggingarráð samþykkti 08.07.2014 að leita til ráðgjafa um endurskipulag Skarðshlíðar samkvæmt bókun ráðsins þann 1. júlí sl. Skipulags- og byggingarsvið fór yfir hugmyndir Ydda og Kanon arkitekta, ásamt samþykktu skipulagi Arkitektur.is með breytingum samþykktum 2013.
Svar

Skipulags- og byggingarsviði er falið að ræða við Ydda arkitekta um nánari útfærslu eins reits á fjölbýlishúsasvæðinu og eina línu í sérbýli.