Strandgata 41
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 10 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 484
30. október, 2013
Annað
Fyrirspurn
Tekið fyrir erindi um gerð niðurfelldrar skábrautar í aðkomu að hárgreiðslustofu til að auðvelda hreyfihömluðum aðgengi. Lögð fram umsögn Umhverfis og framkvæmdasviðs: "Tröppur á teikningum eru sýndar á bæjarlandi. Eðlilegast er að heimila lóðarhafa að fara í framkvæmdir við tröppur á eigin kostnað á bæjarlandi."
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi tekur jákvætt í erindið fyrir sitt leyti. Málinu vísað áfram til Umhverfis- og framkvæmdasviðs.