Reykjanesbraut , deiliskipulag
Reykjanesbraut
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 8 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 302
26. júní, 2012
Annað
Fyrirspurn
Tekin til umræðu tillaga Landmótunar f.h. Vegagerðarinnar dags. að breytingu á deiliskipulagi fyrir tvöföldun Reykjanesbrautar milli Kaldárselsvegar og Krýsuvíkurvegar. Annars vegar breyting á deiliskipulagi fyrir norðurhluta vegarins dagsettu 08.07.2004, og hins vegar breyting á deiliskipulagi dagsettu 18.12.2007 fyrir suðurhluta vegarins: Baldvin Einarsson Eflu verkfræðistofu gerði grein fyrir tillögunni og veghönnun.
Svar

Skipulags- og byggingarráð þakkar Baldvini Einarssyni fyrir kynninguna.
Skipulags- og byggingarráð felur skipulags- og byggingarsviði að ljúka við gerð deiliskipulags og auglýsa í samræmi við 1. mgr. 43. gr. laga nr. 123/2010.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 197313 → skrá.is
Hnitnúmer: 10121182