Sléttuhlíð deiliskipulag
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 11 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 255
24. ágúst, 2010
Samþykkt
Fyrirspurn
Tekið fyrir að nýju deiliskipulag svæðisins, sem var staðfest með birtingu í b-deild Stjórnartíðinda 19.02.2007. Um er að ræða leiðréttingu á orðalagi til samræmis við breytingu á aðalskipulagi svæðisins, sem staðfest með birtingu í b-deild Stjórnartíðinda 20.04.2010. Áður lögð fram tillaga sviðsstjóra að textabreytingu. Lögð fram ný tillaga skipulags- og byggingarsviðs að textabreytingu.
Svar

Skipulags- og byggingarráð samþykkir framlagða textabreytingu og að deiliskipulagsbreytingin verði auglýst samkvæmt 1. mgr. 26. greinar skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.