Sléttuhlíð deiliskipulag
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 11 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 260
2. nóvember, 2010
Annað
Fyrirspurn
Tekið fyrir að nýju deiliskipulag svæðisins, sem var staðfest með birtingu í b-deild Stjórnartíðinda 19.02.2007. Um er að ræða leiðréttingu á orðalagi til samræmis við breytingu á aðalskipulagi svæðisins, sem staðfest með birtingu í b-deild Stjórnartíðinda 20.04.2010. Tillagan dags. 29.07.10 var auglýst skv. 1. mgr. 26. greinar skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 og er athugasemdatíma lokið. Athugasemd barst. Lögð fram tillaga skipulags- og byggingarsviði að svari við athugasemdinni.
Svar

Skipulags- og byggingarráð tekur undir svar skipulags- og byggingarsviðs, samþykkir skipulagið og að afgreiðslu verði lokið í samræmi við 26. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir deiliskipulag fyrir Sléttuhlíð dags. 29.07.10 og að afgreiðslu verði lokið í samræmi við 26. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997."