Linnetstígur 3, erindi
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Bæjarráð nr. 3611
20. október, 2022
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram beiðni um að fella niður kvöð í lóðarleigusamningi Linnetstíg 3
Svar

Sigrún Sverrisdóttir víkur af fundi við afgreiðslu þessa máls.

Bæjarráð samþykkir að kvöð í lóðarleigusamningi Linnetstígs 3, þar sem kveðið er á um að umferð um þar tilgreindan undirgang skuli heimil og ótalin af leigutaka sem og lagning á vatns- og holræsalögum, skuli felld niður. Staðfesting þess efnis skal send sýslumanni til þinglýsingar.