Suðurhella 10, dagsektir vegna óleyfisframkvæmda
Suðurhella 10
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 884
18. maí, 2022
Annað
Fyrirspurn
Að Suðurhellu 10 hafa verið settar upp svalir án samþykkis byggingarfulltrúa sem uppfylla ekki ákvæði byggingarreglugerðar. Bréf vegna þessa, þar sem óskað er eftir að svalir verði fjarlægðar, voru send eigendum þann 28.2 og 5.4.2022.
Svar

Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa samþykkir að leggja dagsektir, 20.000 kr. pr. dag, á eigendur fasteigna sem settar hafa verið upp svalir á frá og með 1. júní 2022 í samræmi við 56. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010.