Vitastígur 6, svalir
Vitastígur 6
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 894
24. ágúst, 2022
Annað
Fyrirspurn
Samþykkt var á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa Hafnarfjarðar þann 13.7.2022 að grenndarkynna umsókn Sigmars Svanhólm Magnússonar frá 3.5.2022 um byggingarleyfi fyrir svölum á efri hæð. Erindið var grenndarkynnt 27.7.2022 með athugasemdafresti til 24.8.2022. Þann 9.8.2022 barst grenndarkynntur uppdráttur samþykktur af hlutaðeigandi aðilum.
Svar

Grenndarkynningu er lokið. Þar sem samþykki allra sem fengu grenndarkynninguna liggur fyrir og engar athugasemdir bárust eru byggingaráformin samþykkt í samræmi við mannvirkjalög og skipulagslög.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 122950 → skrá.is
Hnitnúmer: 10027696