Hamranes reitur 19.B, deiliskipulag
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Bæjarstjórn nr. 1894
14. september, 2022
Samþykkt
Fyrirspurn
1.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 19.júlí sl. Ásgeir Ásgeirsson fh. lóðarhafa leggur 3.1.2022 inn tillögu að deiliskipulagi reitar 19.B dags. 22.12.2021. Tilagan var auglýst og athugasemdir bárust. Tillagan gerir ráð fyrir tveimur 4-7 hæða fjölbýlishúsum með allt að 70 íbúðum. Gert er ráð fyrir bílastæðum ofanjarðar og möguleika á geymslum í kjallara. Lögð fram uppfærð gögn sem taka mið af athugasemdum sem bárust. Skipulags og byggingarráð samþykkir breytingar á auglýstu deiliskipulagi og að erindinu verði lokið í samræmi við skipulagslög. Erindinu er jafnframt vísað til bæjarstjórnar til staðfestingar.
Svar

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og byggingarráðs.