Skarðshlíð 1. áfangi, breytt deiliskipulag
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1888
6. apríl, 2022
Samþykkt
Fyrirspurn
6.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 25.mars sl. Bæjarstjórn samþykkti 12. janúar sl. að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi Skarðshlíðar dags. 5.01.2022 vegna endastöðvar strætó. Tillagan gerir ráð fyrir biðsýli og aðstöðu fyrir vagnstjóra á Ásvallabraut við Nóntorg. Athugasemdafrestur var frá 25.1-9.3.2022. Athugasemd barst. Lagður fram uppfærður uppdráttur sem tekur tillit til athugasemda Landsnets.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir framlagða uppfærða tillögu að deiliskipulagi og vísar til staðfestingar bæjarstjórnar.
Svar

Til máls tekur Ágúst Bjarni Garðarsson.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og byggingarráðs.