Álhella 34, breyting
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 881
27. apríl, 2022
Annað
Fyrirspurn
Þann 12.10.2021 sækir Malbikunarstöðin Höfði um breytingar, fjarlægja núverandi malbikunarstöð, ný malbikunarstöð kemur í staðinn sem afgirt verður með færanlegum hlöðnum einingarveggjum. Bygging mhl. 05 fjarlægð og sú starfsemi sem er þar nú færð í mhl. 04.
Svar

Erindið er samþykkt í samræmi við lög um mannvirki 160/2010.