Hamranes reitur 3.A, deiliskipulag
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1882
12. janúar, 2022
Samþykkt
Fyrirspurn
7.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 14.desember sl. Skipulags- og byggingarráð samþykkti 10. ágúst 2021 fyrirliggjandi tillögu að deiliskipulagi reitar 3.A og að hún yrði auglýst og vísaði til bæjarstjórnar til staðfestingar. Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar staðfesti þann 12. ágúst 2021 afgreiðslu skipulags- og byggingarráðs. Tillagan var auglýst tímabilið 27.8 - 22.10.2021 Auk þess sem tillagan var kynnt á almennum kynningarfundi þann 30. september sl. Athugasemdir bárust. Skipulags- og byggingarráð fól skipulagsfulltrúa þann 2.11.2021 að ræða við lóðarhafa og svara framkomnum athugasemdum. Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24.11.2021 ásamt uppfærðri deiliskipulagstillögu reitar 3.A lögð fram.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir að erindinu verði lokið í samræmi við 41. gr. skipulagslaga og vísar erindinu til staðfestingar í bæjarstjórn.
Svar

Til máls tekur Ólafur Ingi Tómasson.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og byggingarráðs.