Vesturbraut 19, fyrirspurn
Vesturbraut 19
Síðast Synjað á fundi fyrir 2 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 836
12. maí, 2021
Synjað
Fyrirspurn
Laufey Ingólfsdóttir leggur inn fyrirspurn um heimild til að setja kvist og gera svalir á Vesturbraut 19.
Svar

Tekið er neikvætt í erindið eins og það liggur fyrir nú. Hækkun þaks er töluverð og gæta þarf þess að slík hækkun beri ekki gamla húsið ofurliði. Jafnframt er bent á að Vesturbraut 19 fellur undir lög um menningarminjar og skal þá umsögn Minjastofnunar Íslands liggja fyrir hvað varðar breytingar á húsinu.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 122847 → skrá.is
Hnitnúmer: 10027596