Móbergsskarð 11, deiliskipulagsbreyting
Móbergsskarð 11
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 842a
23. júní, 2021
Annað
Fyrirspurn
Á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa þann 12.05.2021 var samþykkt að grenndarkynna frávik frá deiliskipulagi Skarðshlíðar 2. áfanga er nær til lóðanna við Móbergsskarð 2 og 11 í samræmi við skipulagslög. Í breytingunni felst að: Móbergsskarð 11, í stað þriggja íbúða húss verði komið fyrir einnar hæðar parhúsi á lóðinni. Byggingareitur breytist og gert er ráð fyrir fjórum stæðum í stað sex innan lóðar. Þakkótar breytast og fara umfram sem nemur 20cm á fyrirhugaðri bílskúrsbyggingu. Erindið var grenndarkynnt frá 17.5.-21.6.2021. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Skipulagsfulltrúi samþykkir deiliskipulagsbreytingarnar og að málsmeðferð skuli lokið í samræmi við skipulagslög.

221 Hafnarfjörður
Landnúmer: 225459 → skrá.is
Hnitnúmer: 10121206