Hraunbrún 27, fyrirspurn
Hraunbrún 27
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 842a
23. júní, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
Á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa þann 16. apríl 2021 var fyrirspurnarerindi vegna Hraunbrúnar 27 lagt fram. Óskað var eftir að útbúa bílastæði innan lóðar ásamt gerð svalahurðar. Afgreiðsla erindisins var: Tekið er neikvætt í erindið vegna umferðartæknilegra sjónarmiða, að auki skerðast almenn bílastæði í götu samkvæmt fyrirliggjandi tillögu. Þann 21. apríl s.á. óska eigendur eftir frekari rökstuðningi vegna afgreiðslunnar ásamt endurupptöku erindisins jafnframt þar sem óskað er eftir niðurstöðu vegna óska um svalahurð.
Svar

Tekið er jákvætt í erindið að uppfylltum skilyrðum sem sett eru fram í umsögn arkitekts dags. 21.6.2021.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 120979 → skrá.is
Hnitnúmer: 10032686