Malarskarð 18-20, breyting á deiliskipulagi
Malarskarð 18
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 839
2. júní, 2021
Annað
Fyrirspurn
Á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa þann 14. apríl sl. samþykkti skipulagsfulltrúi að grenndarkynna frávik frá deiliskipulagi Skarðshlíðar 2. áfanga er nær til lóðanna við Malarskarð 12-14 og 18-20 í samræmi við skipulagslög 123/2010. Í breytingunni felst að: byggingareitir stækka og gert er ráð fyrir að þakskyggni verði komið fyrir innan stækkunarinnar. Að öðru leyti gilda skilmálar deiliskipulagsins. Erindið var grenndarkynnt frá 30.4.-31.5.2021. Athugasemdir bárust.
Svar

Skipulagsfulltrúi vísar erindinu til afgreiðslu skipulags- og byggingarráðs.