Hádegisskarð 6d, dæluskúr
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 828
17. mars, 2021
Annað
Fyrirspurn
Hafnarfjarðarkaupstaður tilkynnir 11.03.2021 um byggingu dæluskúrs. Húsið er niðurgrafið með torfþaki. Staðsteypt og einangrað með 50mm plasti skv teikningum Sigurlaugar Sigurjónsdóttur dags. 10.03.2021.
Svar

Erindið er móttekið. Samræmist tilkynningarskyldum framkvæmdum sem tilgreindar eru í grein 2.3.5. byggingarreglugerðar 112/2012. Tilkynna skal til byggingarfulltrúa um lok framkvæmdar.