Samræming úrgangsflokkunar á höfuðborgarsvæðinu
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1885
23. febrúar, 2022
Annað
Fyrirspurn
7.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 17.febrúar sl. 4. liður úr fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 2.febrúar sl.
Ishmael David mætir til fundarins og kynnir tillögur starfshóps að samræmingu úrgangsflokkunar á höfuðborgarsvæðinu.
Umhverfis- og framkvæmdaráð þakkar kynninguna og samþykkir fyrir sitt leyti tillögur um samræmda flokkun við heimili og vísar skýrslunni til afgreiðslu bæjarráðs.
Bæjarráð staðfestir fyrirliggjandi yfirlýsingu og veitir bæjarstjóra fullt og ótakmarkað umboð til undirritunar hennar fyrir hönd sveitarfélagsins. Vísað til bæjarstjórnar til staðfestingar.
Svar

Helga Ingólfsdóttir tekur til máls, einnig Ágúst Bjarni Garðarsson.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs samhljóða.