Krýsuvíkurberg, breyting á deiliskipulagi
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 848
18. ágúst, 2021
Annað
Fyrirspurn
Á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa þann 28. júlí sl. var inngangur málsins rangur og er leiðréttur hér með. Á fundi bæjarstjórnar 3. mars sl. var tekin fyrir 12. liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 23. febrúar sl. "Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Krýsuvíkurbergs. Skipulags- og byggingarráð samþykkir að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Krýsuvíkurbergs skv. 43. gr. skipulagslaga og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn" Bæjarstjórn samþykkti samhljóða afgreiðslu skipulags- og byggingarráðs. Tillagan var auglýst 11.6-23.7.2021. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa samþykkir að ljúka málinu í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010.