Garðavegur 11, deiliskipulag
Garðavegur 11
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 727
9. febrúar, 2021
Annað
Fyrirspurn
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum þann 9. des. sl. að grenndarkynna tillögu að breyttu deiliskipulagi er nær til lóðarinnar við Garðaveg 11 og að málsmeðferð yrði í samræmi við 43.gr. skipulagslaga. Í breytingunni er gert ráð fyrir nýjum byggingarreit fyrir tveggja hæða viðbyggingu vestan við núverandi hús að hámarki 225m². Nýtingarhlutfall lóðar verður að hámarki 0,4. Athugasemdir bárust. Skipulags- og byggingarráð fól skipulagsfulltrúa þann 26.1.2020 að svara framkomnum athugasemdum og vísaði tillögu að breyttu deiliskipulagi Garðavegs 11 til vinnu við deiliskipulag vesturbæjar. Umsögn skipulagsfulltrúa lögð fram.
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa er vísað til áframhaldandi vinnu við deiliskipulag vesturbæjar.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 120558 → skrá.is
Hnitnúmer: 10030981