Suðurhvammur 22, spilda austan megin við húsið
Suðurhvammur 22
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 814
14. október, 2020
Annað
Fyrirspurn
Eigandi að Suðurhvammi 22 óskar eftir að fá afnot af landi austan megin við húsið en lóðarhafi á lóð aðeins 2 metra frá húsvegg. Umrædd spilda er innst í botnlanga. Óskað er eftir því að reisa áhaldageymslu á spildunni, sjá um viðhald hennar og planta plöntum.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi heimila tímabundin afnot af landspildunni. Umsækjanda er bent á að hafa samband við umhverfis- og framkvæmdasvið til að ljúka málinu.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 122613 → skrá.is
Hnitnúmer: 10026047