Suðurgata 36, deiliskipulag
Suðurgata 36
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 716
6. október, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa vísar umsókn Kristins Ragnarssonar f.h. eigenda dags. 15.9.2020 um breytt deiliskipulag til skipulags- og byggingarráðs. Tillaga að breyttu deiliskipulagi gerir ráð fyrir fjölgun íbúða þ.e. að á jarðhæð verði heimilað að fá samþykktar tvær íbúðir þannig að íbúðum á lóð fjölgi úr tveimur íbúðum í þrjár.
Svar

Skipulags- og byggingarráð samþykkir að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi Suðurgötu og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn. Tillagan verður auk þess grenndarkynnt aðliggjandi lóðarhöfum.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 122528 → skrá.is
Hnitnúmer: 10025956