Suðurgata 18, lóðarstækkun, breyting lóðar
Suðurgata 18
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1888
6. apríl, 2022
Samþykkt
Fyrirspurn
5. liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 25.mars sl. Á fundi skipulags- og byggingarráðs Hafnarfjarðar þann 21. september sl. var samþykkt að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi Suðurgötu 18. Bæjarstjórn staðfesti samþykkt skipulags- og byggingarráðs á fundi sínum þann 29. september sl. Tillagan var auglýst frá 22.10 - 3.12.2021. Athugasemdir bárust. Lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa ásamt uppfærðum uppdrætti.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir framlagða uppfærða tillögu að deiliskipulagi Suðurgötu 18 og vísar til staðfestingar bæjarstjórnar.
Svar

Til máls tekur Ágúst Bjarni Garðarsson.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og byggingarráðs.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 122514 → skrá.is
Hnitnúmer: 10025942