Hlíðarbraut 7, fyrirspurn um stækkun lóðar
Hlíðarbraut 7
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3553
13. ágúst, 2020
Annað
Fyrirspurn
13. liður af afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 22. júlí sl. Þann 8. júlí sl. sækir Hartmann Kárason um lóðarstækkun við Hlíðarbraut 7. Erindinu er vísað til bæjarráðs. Fallist bæjarráð á stækkun lóðarinnar skal leggja inn umsókn um deiliskipulagsbreytingu þar sem stækkunin er ekki í samræmi við gildandi deiliskipulag. Allur kostnaður við breytingu á deiliskipulagi fellur á lóðarhafa.
Gunnþóra Guðmundsson arkitekt mætir til fundarins.
Svar

Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti umbeðna lóðarstækkun en bendir á að vinna þarf tillögu að breytingu á deiliskipulagi þar sem gert verði ráð fyrir umræddri stækkun lóðar. Hafi umsókn um breytingu á deiliskipulagi ekki borist sveitarfélaginu innan 12 mánaða frá samþykkt þessari telst hún úr gildi fallin.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 120888 → skrá.is
Hnitnúmer: 10032599